Við leggjum metnað okkar í að veita vandaða og góða þjónustu í almennum bifvélaviðgerðum auk þess sem við bjóðum upp á hjólastillingar og smurþjónustu.
Áralöng reynsla og mikil þekking.
Við vinnum samkvæmt ISO 14001 umhverfisstjórnunartaðlinum og leggjum áherslu á að koma í veg fyrir mengun og draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Við setjum okkur umhverfismarkmið og fylgjumst með árangrinum.
Okkar áherslur eru eftirfarandi:
Efla umhverfisvitund starfsfólks okkar með samvinnu, fræðslu og þjálfun.
Efla umhverfisvitund birgja og viðskiptavina með samvinnu og miðlun upplýsinga.
Fylgja lögum og reglugerðum í umhverfismálum og ganga lengra þegar við á með stöðugum umbótum í huga.
Fara vel með auðlindir og nýta þær vel.
Lágmarka magn úrgangs, flokka allan úrgang og hámarka endurvinnslu.
Lágmarka notkun varasamra efna.
Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjafna starfsemina í samvinnu við viðurkennda aðila.